Jólin eru góður tími. Fjölskyldur koma saman og borða góðan mat. Á mínu heimili er haldið í gamlar hefðir hvað varðar bakstur og matargerð. Ég steiki laufabrauð og nota uppskriftina hennar mömmu. Ég baka tvær til þrjár tegundir af smákökum, lagköku, rúllutertu, stollen brauð og ég elda steikt hangikjöt.
Eftispurnin eftir fyrrnefndu sykurljúfmeti fer þó minnkandi með árunum, bæði hjá mér sjálfri og öðrum fjölskyldumeðlimum. Við í fjölskyldunni erum flest að verða vel meðvituð um óhollustu hvíta sykursins … en, það eru nú einu sinni jólin og þá má leyfa sér smá…
Nú ætla ég að segja frá steikta hangikjötinu sem við eldum um hver jól og bjóðum góðum vinum að njóta með okkur. Frá því að ég man eftir mér höfum við stórfjölskyldan haft steikt hangikjöt á jólunum, langoftast á gamlárskvöld. Lesa má nánar um þennan sið okkar í viðtali við pabba í jólablaði Morgunblaðisins árið 2006. Þar segir hann meðal annars frá því hvernig þessi siður er tilkominn. Það sem til þarf er gott hangilæri, rauðkál, grænar baunir, kartöflustappa, smjör og egg. Ég hef aðlagað uppskriftina að mínum þörfum. Til dæmis þá úrbeina ég lærið fyrst og sker það síðan, öfugt við það sem pabbi gerði í gamla daga. Hann skar alltaf hangilærið í sneiðar af beininu.
Svona fer ég að: Hangilærið er úrbeinað. Ég er svo heppinn að Bryndís Lilja, dóttir mín, er snillingur í að úrbeina og hún hefur séð um þennan hluta undanfarin ár. Þegar búið er að úrbeina lærið snyrti ég það til. Ég sker í burtu ,,húð“ og fitu.

Nú er kjötið skorið í ,,buffsneiðar“ sem eru svona um það bil einn til einn og hálfur sentimeter að þykkt.

Sneiðarnar eru lamdar létt með buffhamri báðum megin og þeim raðað upp á fat þar sem þær bíða steikingar á pönnu.


Þegar búð er að ,,buffa“ allar sneiðarnar eru þær klárar til steikingar á pönnu. Ég steiki upp úr smjöri og skola jafnvel pönnuna á milli því það kemur saltkenndur vökvi úr kjötinu við steikinguna, sem ég geri ráð fyrir að sé ekki sérstaklega hollur.

Þegar ég er búin að steikja kjötið í tvær til þrjár mínútur á hvorri hlið raða ég sneiðunum upp í ofnskúffu eða á steikingarfat, þar sem það bíður steikingar í ofninum. Svona 20 mínútum áður en borða skal kjötið set ég það inn íheitan ofn og hita það vel. Ofninn stilli ég á 180°C. Kjötið er síðan borið fram með grænum baunum, rauðkáli, kartöflustöppu og smjöri og spældum eggjum. Já, þið lásuð rétt. Við erum að tala um spæld egg hér. Það fer alveg ótrúlega vel saman að borða steikt hangikjöt með spældum eggjum.
Næst ætla ég að gefa upp uppskrift að ótrúlega einföldum og góðum jarðaberjafrómas sem ég fékk frá mömmu Sísu á sínum tíma. Hann er alveg ómissandi á aðfangadagskvöld.