Í dag, 7. júlí 2026 eru nákvæmlega 70 ár síðan (fóstur)foreldrar mínir gengu í hjónaband.
Mamma var alin upp á Staðastað á Snæfellsnesi. Dóttir séra Þorgríms Vídalíns Sigurðssonar, sem þar var prestur og Áslaugar Guðmundsdóttur konu hans. Pabbi var hins vegar Blönduósingur. Hann var sonur Þorvaldar Þórarinssonar frá Hjaltabakka og Ragnheiðar Brynjólfsdóttur, konu hans, sem oft var kennd við Ytri – Ey.
Mamma og pabbi kynntust árið 1954 þegar mamma var í Kvennaskólanum á Blönduósi, nánar tiltekið á grímuballi. Í bréfum til mömmu rifjar hann upp þeirra fyrstu kynni og skrifar meðal annars: Þegar prestdóttirin hafði nú geð á því að láta múrarabjálfa vera að viðra sig upp við sig og láta það enda með þessu.
Hann þráði að eignast gott heimili með henni og hann hafði orð á því að hún væri besta og dásamlegasta manneskjan í heiminum. Í bré´fum sem pabbi skrifar mömmu árið 1955 má sjá hversu ástfangin hann hefur verið af henni. Hann átti þá ósk heitasta að fá að giftast mömmu. Þau giftu sig á Staðastað 7. júlí 1956 og það var afi Þorgrímur, sem gaf þau saman.
Tvær brúðkaupsmyndir voru teknar af mömmu og pabba. Hvers vegna það var gert vitum við ekki. Ég gleymdi að spyrja þau um það. En falleg eru þau, með allt lífið framundan og hvor myndin skildi nú hafa verið tekin á undan? Ég giska á þá neðri.


